Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/14726
Íslensk ferðaþjónusta er á hraðri uppleið og áhugi erlendra ferðamanna á að skoða hina fámennu en jafnframt friðsælu eyju hefur farið stöðugt vaxandi síðastliðin ár. Erlendir ferðamenn laðast að íslenskri náttúru og menningu sem og friðsældinni sem landinu fylgir. Vegna aukningar ferðamanna til landsins hefur ferðaþjónusta landsins vaxið að sama skapi og sér hún nú 8.500 manns hér á landi fyrir störfum, sem er um 5,2% af heildar atvinnu á Íslandi. Með aukningu erlendra ferðamanna til landsins eykst innkoma gjaldeyris inn í landið, sem er mikilvæg íslenska hagkerfinu.
Í ritgerðinni er sjónum beint að einum hópi ferðamanna, það er kínverskum ferðamönnum. Ferðamenn frá Kína eru ekki bara sá hópur ferðamanna sem hlutfallslega fjölgar hraðast á Íslandi heldur eyða þeir mestum fjármunum allra ferðamanna í heiminum á ferðalögum sínum. Tilgangur þessa verkefnis var að skoða hvaða til hvaða aðgerða íslenska ferðaþjónustan gæti gripið til að þjónusta betur ferðamenn frá Kína í von um að fjölga kínverskum ferðamönnum til Íslands. Með hjálp markaðsgreininga og tölfræðilegra gagna kemur í ljós að margt er í spilunum hjá íslenskri ferðaþjónustu til að fjölga ferðamönnum frá Kína til Íslands. Margir möguleikar eru á markaði og ætti íslensk ferðaþjónusta að færa sér þessa möguleika betur í nyt í von um betri tengsl við kínverska ferðamenn.
Kínverski markaðurinn er að springa út og er ferðamönnum frá Kína að fjölga hratt. Vegna uppsveiflu í efnahag landsins eru Kínverjar nú með meiri peninga á milli handanna en áður og vilji Kínverja til að taka sér frí og ferðast hefur aukist mikið síðustu ár. Þessum stóra og ört vaxandi hópi ferðamanna ber því að gefa betri gaum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bs Lokaskil.pdf | 664,87 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |