Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/14751
Þessi greinargerð er hluti af lokaverkefni mínu í meistaranámi í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Greinargerðin fjallar um miðlunarhluta verkefnisins sem er ljósmyndasýning í Menningar- og safnahúsinu Leifsbúð í Búðardal. Sýningin var sett upp í apríl 2013 og ber hún heitið Búðardalur - Augnablikin heima. Sýningin byggir á ljósmyndum af íbúum Búðardals sem teknar voru af höfundi verkefnisins á tímabilinu september 2012 fram í mars 2013. Í tilefni sýningarinnar var einnig gefin út sýningarskrá og opnuð gagnvirk vefsíða. Ljósmyndirnar á sýningunni eru persónuleg samtímaskrásetning á umhverfi, manngerðum og samfélagi. Það er hversdagsleg stemning í myndunum og þær fjalla um venjubundið líf fólks á heimilum sínum. Jafnframt er um að ræða varðveislu á því sem er liðið, það er svipbrigði augnabliksins. Í þessari greinargerð verður farið í gegnum vinnsluferli verkefnisins og greint frá hugmyndum á bak við verkefnið, frá hugmynd að veruleika. Þá verða dregnar fram skilgreiningar á hugtakinu menning og leitast við að tengja þær umfjöllunarefni sýningarinnar. Einnig er fjallað um rannsókn, vettvangsvinnu og miðlunarleiðir fyrir verkefnið Búðardalur - Augnablikin heima. Þættir er snúa að undirbúningi, hönnun og uppsetningu sýningar eru skoðaðir sem og almennt hlutverk safna og sýninga.