en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/14782

Title: 
  • Title is in Icelandic Húsfreyjan á bæjarhellunni. Hvaða máli skipti kyn Vigdísar Finnbogadóttur í forsetakosningunum 1980?
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Eftir nýársávarp Kristjáns Eldjárn 1980 varð ljóst að nýr forseti yrði kjörinn í landinu þá um sumarið. Ýmsir voru nefndir sem hugsanlegir arftakar Kristjáns en að lokum fór það svo að fjórir gáfu kost á sér, þrír karlar og ein kona. Vigdís Finnbogadóttir átti ekki sjö dagana sæla í kosningabaráttunni og enginn frambjóðandi hefur í forsetakosningum á Íslandi mátt þola eins ítarlega skoðun á einkalífi sínu og hún. Mátti Vigdís svara ótrúlegustu spurningum um það efni. Ástæðan var að hún var kona, fráskilin, einstæð móðir. Í þessari ritgerð er spurt hvaða máli kyn Vigdísar Finnbogadóttur skipti í forsetakosningunum 1980. Skýringa er leitað út frá samtímaheimildum með greiningu á orðræðunni í kosningabaráttunni 1980 og út frá kenningum í stjórnmálafræði og kynjafræði. Niðurstaðan er að Vigdís gjörbreytti með framboði sínu kosningabaráttunni, hún vakti athygli á málefnum og stöðu kvenna og framganga hennar varð öðrum konum til góða.

Accepted: 
  • May 6, 2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14782


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Guðfinnur Sigurvinsson.pdf389.53 kBOpenHeildartextiPDFView/Open