Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/1491
Í þessu lokaverkefni til B.Ed. gráðu við Kennaraháskóla Íslands er fjallað um gildi þess að beita fyrirbyggjandi aðgerðum í lestrarkennslu ungra barna. Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að grípa snemma inn í lestrarnám barna til þess að reyna að koma í veg fyrir að nemendur lendi í lestrarerfiðleikum. Fjallað er um mikilvægi hljóðkerfisvitundar og skimunarprófa, ásamt reynslu og þekkingu kennara en allir þessir þættir geta haft áhrif á það hvort nemendur verða yfirleitt læsir. Gefin eru dæmi um tvenns konar kennsluskipulög sem byggja á því að ná til allra barna með tilliti til mismunandi getu í upphafi lestrarnáms.
Fjallað er almennt um lestur og þróun hans ásamt því hvað gerist ef þróunin er ekki eins og henni ber að vera.
Lykilorð: Lestur, lestrarerfiðleikar, snemmtæk íhlutun
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
363ttir loka).pdf | 330.91 kB | Open | Mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða í lestrarkennslu barna-heild | View/Open |