Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1495
Í ritgerðinni er varpað ljósi á þá þróun sem orðið hefur í námskrám í tónmennt frá 1960 til dagsins í dag. Greint er frá helstu einkennum hverrar námskrár og megináherslum kennslunnar hverju sinni. Innihaldsþættir námskránna eru svo bornir saman til að sýna fram á helstu breytingar og um leið þá þróun sem átt hefur sér stað.
Á undan umfjölluninni um tónmenntarnámskrárnar er skyggnst inn í heim námskrárfræðinnar þar sem meginstefnur námskrárþróunar og helstu hugmyndir fræðimanna um fyrirbærið námskrá eru skoðaðar. Leitað er svara við klassískum námskrárspurningum eins og: Hvað er námskrá? og hvað þarf námskrá að innihalda? Er þetta fyrst og fremst gert til að sem skýrust mynd fáist á þá umfjöllun sem á eftir kemur.
Lykilorð: Aðalnámskrá, námskrá, námskrárfræði, tónmennt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 354,53 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |