is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/14977

Titill: 
  • Eftirsóttir færniþættir á vinnumarkaði á 21. öldinni. Eru háskólar að brautskrá hæfa nemendur fyrir atvinnulífið?
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari rannsókn er sjónum beint að þverfaglegum færniþáttum sem teljast mikilvægir í atvinnulífi á 21. öldinni. Markmiðið er að kanna hvort og hvernig skólakerfið efli þessa færniþætti meðal nemenda og hvort efling færniþáttanna tengist ánægju þeirra með námið. Greint er frá megindlegri rannsókn þar sem nemendur í Háskólanum í Reykjavík (HR) svöruðu spurningakönnun þar sem meðal annars var spurt hvort þeir teldu að það að stunda nám við skólann efldi með þeim tiltekna færniþætti. Þátttakendur voru 697 og var könnunin gerð í lok árs 2011. Svör nemenda eru einnig skoðuð í tengslum við almenna ánægju með námið. Unnið er út frá fræðigreinum um færniþætti á 21. öldinni og sú umræða tengd við kenningar í náms- og starfsráðgjöf. Sjónum er beint að þeim áherslum sem menntakerfið þarf að þróa til að efla færniþætti 21. aldar hjá nemendum. Niðurstöður benda til þess að nemendur telji að háskólanám efli með þeim þverfaglega færniþætti 21. aldarinnar og skýrir það hluta af almennri ánægju þeirra með námið. Hagnýting rannsóknarinnar felst meðal annars í því að miðla færniþáttum 21. aldarinnar til fagaðila í menntakerfinu og varpa ljósi á hvort háskólanám efli færniþættina og tengist ánægju nemenda með námið. Vonast er til að niðurstöðurnar nýtist náms- og starfsráðgjöfum og öðrum fagaðilum innan skólakerfisins, auk þess að nýtast HR.

  • Útdráttur er á ensku

    This study looks at the interdisciplinary skills considered important in the 21st century marketplace. The goal is to examine whether and how the educational system promotes these skills among students and whether that correlates with their contentment with the course of study. A quantitative research study is revealed in which students at Reykjavík University (RU) answered a questionnaire. Among other things, they were asked whether their studies promoted certain skills. The research was conducted in late 2011; 697 students participated. Their answers are also viewed in relation to their overall evaluation of the study course. The scientific basis is the fields of study on 21st century skills combined with theories in educational and career counseling. The emphasis is on factors which need development within the educational system to promote 21st century skills among students. The results indicate that students feel their studies strengthen interdisciplinary 21st century skills, which accounts partly for general satisfaction with the study course. One of the applications of the study is to present 21st century skills to professionals in the educational system and to clarify whether university studies promote these skills and whether that correlates with the students´ contentment with the study course. Hopefully this study will be useful to educational and career councilors and other education professionals as well as to RU.

Samþykkt: 
  • 8.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/14977


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA ritgerð SHJ 7.5.2013 -LOKAEINTAK.pdf565.44 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna