Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/15013
Ritgerðin fjallar um hvernig viðhorf til örvhentra á Íslandi á 20. öld hafa breyst í tímans rás, frá viðhorfi þess að örvhendi væri hægt að venja íslensk börn af á fyrri hluta aldarinnar og
að því að örvhentir fengu óáreittir að nota vinstri höndina í stað þeirrar hægri, með tilkomu nýrra viðhorfa um uppeldi og meðferð barna eftir miðbik aldarinnar.
Fyrst verður fjallað um viðhorf til örvhentra og þróun á því í íslenskum fjölmiðlum, sem birtust í íslenskum tímaritum á 20. öldinni, hvernig viðhorfið til örvhentra breyttist úr því að örvhendi var ekki viðurkennt yfir í það að verða viðurkennt á Íslandi.
Næsti kafli fjallar um viðhorf í íslenskum tímaritum og dagblöðum gagnvart erlendum rannsóknum um örvhendi og orsakir þess. Að auki eru kynnt viðhorf til örvhentra í erlendum ritum sem gefin hafa verið út og fjalla um örvhendi.
Því næst er að finna umfjöllun um viðhorf til örvhentra innan íslenska skólakerfisins
á 20. öld. Seinast verður vikið að viðhorfum tíu örvhentra einstaklinga af báðum kynjum til
sérkennis síns og þeir spurðir út í sérkennið og fylgifiska þess.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
HólmfríðurMagnúsdóttir, BA ritgerð.pdf | 641.96 kB | Open | Complete Text | View/Open |