Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1503
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er tvíþætt. Í fyrsta hlutanum er saga sem við gerðum og fjallar um ungan dreng sem er heillaður af íslensku þjóðsögunum. Eftir að hann lærði um þjóðsögurnar í skólanum fóru ýmsir hlutir að gerast í draumaheimi hans og þar komu við sögu margar af þekktustu þjóðsagnarpersónum sem þekkjast hér á landi. Með þessari sögu viljum við að nemendur nálgist þjóðsögurnar á nýjan hátt og því tvinnum við saman nútímanum og þjóðsögunum.
Í öðrum hlutanum leitumst við við að skoða hvernig nota má söguna sem námsefni í yngri bekkjum grunnskólans. Þar eru ýmsar kennsluaðferðir kynntar og þær settar til hliðsjónar sögunni og persónum hennar. Margar hugmyndir um mismunandi nálgun koma fram í verkefnum sem fylgja. Öll þau verkefni sem koma fram eru ekki endanleg niðurstaða heldur eru þau kynnt sem hugmyndir sem hægt er að vinna út frá og bæta við.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Draumarnir hans Dags 250408-lokaskil!!!!!.pdf | 127,25 kB | Opinn | Skáldsaga | Skoða/Opna | |
| Lokaverkefni til B-lokaskil.pdf | 156,52 kB | Opinn | Greinagerð | Skoða/Opna |