Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/15048
Hér er fjallað um hljóðheim kvikmyndanna og þá sérstaklega notkun á þögninni í kvikmyndinni M eftir Fritz Lang. Til þess að setja hljóðheim myndarinnar í samhengi verður hann skoðaður í tengslum við mismunandi sögulega, menningarlega og kvikmyndafræðilega þætti. Fyrst er kvikmyndin sett í samhengi við þau tímamót sem áttu sér stað með tilkomu hljóðsins í kvikmyndum og þær fagurfræðilegu umræður sem um hljóðvæðinguna stóðu í Weimar-lýðveldinu. Þvínæst er stórborgarumhverfi Berlínar á millistríðsárunum skoðað í sögulegu og menningarlegu samhengi og straumar sem kenndir eru við nýju hlutlægnina sérstaklega teknir fyrir. Að lokum eru þrjú atriði í M tekin til greiningar og velt upp mismunandi virkni þagnarinnar í kvikmyndinni. Með því að velta upp mismunandi hliðum þagnarinnar í kvikmyndinni er sýnt fram á að hún hefur víða skírskotun og markar að vissu leyti endalok Berlínar eins og hún var á þriðja áratugnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritg ORVAR SMARASON.pdf | 591,92 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |