en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/1505

Title: 
  • Title is in Icelandic Lestur, bókmenntir og lífsleikni : fræðileg umfjöllun um lestur, bókmenntir, lífleikni og söguaðferðina ásamt söguramma fyrir bókina um Bínu bálreiðu
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Ritgerð þessi er lokaverkefni okkar til B.Ed. prófs frá grunnskólabraut Kennaraháskóla Íslands. Um er að ræða heimildaritgerð um lestur, lestrarkennslu- aðferðir og hvernig nýta má barnabókmenntir við lestrarkennslu. Í ritgerðinni má finna skilgreiningar á því hvað lestur er og hvernig hann þróast og notuð til þess kenning Linneu C. Ehri um þróun sjónræns orðaforða. Jafnframt er fjallað um tvær helstu lestrarkennsluaðferðir sem notaðar hafa verið hér á landi. Unnið er út frá þeirri hugmynd að nýta söguaðferðina til að sýna hvaða leiðir kennarar geta farið í byrjendakennslu í lestri og komið með þeim hætti til móts við mismunandi þarfir nemenda. Í ritgerðinni er því að finna umfjöllun um söguaðferðina, uppruna hennar og aðdraganda. Í lokaverkefninu má einnig finna umfjöllun um lífsleikni og barnabókmenntir sem fléttast inn í söguaðferðina. Verkefninu fylgir sögurammi með kennsluleiðbeiningum en söguramminn er byggður á barnabókinni Bínu bálreiðu og er ætlaður til kennslu í 1. bekk grunnskóla. Námsmat er órjúfanlegur þáttur í skólastarfi og því má finna í verkefninu fræðilega umfjöllun um námsmat sem hentar vel fyrir söguaðferðina. Lykilorð: Lestur, lífsleikni, söguaðferðin, bókmenntir.

Description: 
  • Description is in Icelandic Grunnskólabraut
Accepted: 
  • Jun 26, 2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1505


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
brynja_thorey_lokaverkefni.pdf379,89 kBLockedHeildartextiPDF