Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/15096
Hér er greint frá rannsókn á þróun uppeldissýnar starfsfólks í einum leikskóla í Reykjavík. Rannsóknin stóð yfir meðan unnið var að þróunarverkefninu ,,Má ég vera með“ á árunum 2002–2004. Í leikskólanum voru 130 börn, 25 leiðbeinendur og sjö leikskólakennarar. Markmiðið var að varpa ljósi á samhengið milli uppeldissýnar og samskipta- og kennsluaðferða í leikskóla
þar sem leikskólakennarar eru 21% starfsfólks. Samskipti barna og starfsfólks voru tekin upp á 125 myndbönd og voru 30 vettvangsnótur af greiningarfundum skráðar í kjölfarið. Að auki voru tekin 23 hópviðtöl við starfsfólkið, í upphafi, um miðbik og í lok verkefnis og spurningalisti lagður fyrir allt starfsfólk í upphafi og við lok þess. Í ljós kom að kennarar og leiðbeinendur höfðu fremur
ólíka uppeldissýn í upphafi en minna bar á milli í lokin. Vegna mismunandi uppeldissýnar nýttist
þróunarverkefnið leikskólakennurum og leiðbeinendum hvorum á sinn mátann. Leiðbeinendur
þróuðu hugmyndir sínar um börn og leikskólastarf en leikskólakennarar nýttu aðferðir verkefnisins
til að þróa eigin fagmennsku og starf með börnum sem þurftu sérstakan stuðning. Meðan á
verkefninu stóð dró úr reglufestu og stjórn fullorðinna á verkefnum barna í leikskólanum. Í
lokin var lögð meiri áhersla á að staðfesta frumkvæði, virkni og athafnir barna sem og ábyrgð
fullorðinna á lýðræðislegum samskiptum í leikskólanum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
7_hronn_thordis1.pdf | 426,93 kB | Open | Heildartexti | View/Open |