en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/151

Title: 
  • Title is in Icelandic Hefur þyngd eða þyngdaraukning kvenna á meðgöngu áhrif á útkomu fæðingar og barns?
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Ofþyngd er vaxandi heilbrigðisvandamál í heiminum í dag og er Ísland engin undantekning þar á. Yfirþyngd er talin þjaka u.þ.b. 30% íslenskra kvenna og þar af mikil offita um 10% kvenna. Rannsakendur vilja varpa fram þeirri spurningu hvort konur í yfirþyngd geti átt við margvísleg vandamál að etja sem tengjast meðgöngu og fæðingu.
    Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvort tengsl séu á milli mikillar þyngdaraukningar á meðgöngu, fæðingaraðferðar kvenna og útkomu barns úr fæðingu. Skoðuð voru gildi þyngdar fyrir meðgöngu og þá áhættu sem of mikil þyngdaraukning getur haft á meðgöngu og fæðingu. Einnig var skoðað hvort hátt BMI móður hafði áhrif á þyngd og útkomu barns eftir fæðingu.
    Rannsakendur notuðu megindlega rannsóknaraðferð við þessa rannsókn. Upplýsingum var aflað í gegnum 10 hópa skráningarkerfi Kvennadeildar FSA á eins árs tímabili, frá 1. janúar til 31. desember árið 2004. Skráningarkerfið er byggt þannig upp að allar konur sem fæða börn sín á Kvennadeild FSA eru flokkaðar eftir þessu skráningarkerfi í hópa sem gerir starfsfólki auðveldara að skoða útkomu kvenna og barna úr fæðingu innan hvers hóps.
    Rannsóknir hafa verið gerðar erlendis um áhrif þyngdaraukningar á meðgöngu og fæðingu en ekki er vitað til þess að slík rannsókn hafi verið gerð hérlendis og þótti rannsakendum því vert að leggja út í slíka rannsókn. Það er mat rannsakenda að mikilvægt sé að auka fræðslu og umræðu um afleiðingar yfirþyngdar og offitu á meðgöngu og í fæðingu. Þar ættu hjúkrunarfræðingar og ljósmæður að eiga frumkvæðið.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að þyngdaraukning frumbyrja er meiri en fjölbyrja og konur þyngdust mun meira á meðgöngu en æskilegt er. Hægt er að tengja þyngd móður við útkomu kvenna úr fæðingu því konur sem þyngdust meira þurftu frekar verkjameðferð í fæðingu, hjálp með sogklukku og keisara og rifnuðu frekar. Ekki er hægt að tengja þyngdaraukningu mæðra við þyngd barna en þær mæður sem voru í yfirþyngd eða í offituflokki samkvæmt BMI stuðli voru frekar með lægri Apgar skor.
    Lykilhugtök: Meðganga, fæðing, þyngd, offita, body mass index, börn og heilbrigði.

Accepted: 
  • Jan 1, 2005
URI: 
  • URI is in Icelandic http://hdl.handle.net/1946/151


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BMI.pdf1,43 MBOpenHefur þyngd eða þyngdaraukning kvenna á meðgöngu áhrif á útkomu fæðingar og barns? - heildPDFView/Open