en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/152

Title: 
  • Title is in Icelandic „Ég er svona streitutýpa.“ : rannsókn á kvíða kransæðasjúklinga
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Árlega deyja um 500 Íslendingar af völdum hjarta- og æðasjúkdóma sem gerir þessa sjúkdóma að algengustu dánarorsök hér á landi. Meðal hinna fjölda sálrænna viðbragða sem komið geta í kjölfar kransæðastíflu er kvíði algengastur. Hjá kransæðasjúklingum virðist kvíði auka líkur á dauðsföllum. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna orsakir og einkenni kvíða hjá kransæðasjúklingum. Rannsóknir sýna að kvíði getur haft neikvæð áhrif á batahorfur og því mikilvægt að greina hann og meðhöndla í tíma.
    Rannsóknarspurningin sem sett var fram var: Hvað orsakar kvíða hjá kransæðasjúklingum og hver eru helstu einkenni kvíðans?
    Við gerð rannsóknarinnar var notað eigindlegt rannsóknarsnið samkvæmt fyrirbærafræðilegri rannsóknaraðferð Vancouver-skólans. Úrtakið samanstóð af fjórum einstaklingum sem greinst höfðu með kvíða á göngudeild kransæðasjúklinga með HADS kvíðaprófinu. Eitt viðtal var tekið við hvern meðrannsakenda, viðtölin tóku um hálfa til eina klukkustund.
    Í niðurstöðunum voru greind þrjú þemu, þau voru: að þekkja sjálfan sig, lífið eftir kransæðastíflu og reynsla af heilbrigðisþjónustu. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að orsakir kvíðans voru óþarfa áhyggjur af hverju sem væri og einkenni kvíða eru að miklu leyti líkamleg. Meðrannsakendur fundu allir fyrir kvíða í starfi meðan þeir voru úti á vinnumarkaðnum. Þeim fannst öllum gildi hreyfingar skipta mestu máli í bataferlinu. Almennt voru þeir sammála um að viðmót og þjónusta heilbrigðisstarfsfólks væri góð en þó komu fram góðar ábendingar um hvað mætti betur fara. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru að mestu í samræmi við aðrar rannsóknir. Rannsakendur telja að niðurstöðurnar gefi mikilvæga innsýn inn í líðan kransæðasjúklinga sem er mikilvægur hluti af heildrænni hjúkrun.
    Lykilorð: Kvíði, kransæðasjúkdómur, brjóstverkur, hjartaþræðing, Hospital Anxiety And Depression Scale (HADS) kvíðapróf.

Description: 
  • Description is in Icelandic Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Accepted: 
  • Jan 1, 2005
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/152


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
streitutypa.pdf933.86 kBMembers„Ég er svona streitutýpa.“ - heild PDF
streitutypa-e.pdf72.01 kBOpen„Ég er svona streitutýpa.“ - efnisyfirlitPDFView/Open
streitutypa-h.pdf109.66 kBOpen„Ég er svona streitutýpa.“ - heimildaskráPDFView/Open
streitutypa-u.pdf96.54 kBOpen„Ég er svona streitutýpa.“ - útdrátturPDFView/Open