is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/15313

Titill: 
  • Rúmmálsmat á afkastagetu jarðhitakerfa með Námafjall við Mývatn sem dæmi
  • Titill er á ensku Volumetric assessment of the capacity of geothermal systems with Námafjall near Lake Mývatn as an example
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Þegar afkastageta jarðhitakerfa er metin með rúmmálsaðferðinni er það oftast gert með því að reikna umbreytingu varmaorku í raforku í einu skrefi. USGS-aðferðin er hins vegar nákvæmari því með henni er umbreytingin reiknuð í tveimur skrefum, fyrst úr varmaorku í hreyfiorku og síðan úr hreyfiorku í raforku. Markmiðið með þessu verkefni er að leiða út almennt samband milli varmaorku og raforku á grundvelli USGS-aðferðarinnar þannig að hægt sé að nota einfaldari aðferðina en halda nokkurn veginn nákvæmni USGS-aðferðarinnar. Með því er líka hægt að tryggja samræmdar niðurstöður en oft hefur skort á slíkt við notkun rúmmálsaðferðarinnar. Markmið verkefnisins er jafnframt að tengja þessa aðferð "Monte Carlo"-aðferðinni og geta þannig tekið tillit til óvissu í hinum ýmsu breytum og fá niðurstöður sem líkindadreifingu. Jarðhitasvæðið við Námafjall, austan við Mývatn, var tekið sem dæmi. Gögn um svæðið voru fengin frá Landsvirkjun og út frá þeim var hægt að meta flestar þær stærðir sem þurfti. Miklir möguleikar á nýtingu jarðvarma eru á svæðinu. Með hermun gagna fékkst að framleiðsugeta á svæðinu gæti verið allt að 260 MWe á 30 ára tímabili og 150 MWe á 50 ára tímibili án þess að ganga of nærri jarðvarmageyminum.

  • Útdráttur er á ensku

    When capacity of geothermal fields is estimated with volumetric assessment the conversion from heat to electric energy is often calculated in one step. The USGS volumetric "heat in place" estimation method calculates the conversion in two steps, first from heat to work and then from work to electric energy. The goal of this project was to derive a general relationship between heat and electric energy by using USGS volumetric method and applying that relationship in the easier one-step method without loosing the accuracy. By doing so you get comparable results from both methods, but volumetric methods have lacked unification. The goal is also to link this method with another method, the Monte Carlo simulation method, which takes the uncertainty of variables into consideration and gives results as probability distributions. The geothermal field around Námafjall, east of Lake Mývatn in North Iceland, is then taken as an example. Data from the area was obtained from Landsvirkjun which made it possible to estimate most of the variables. With data simulation the capacity for electric energy was evaluated. For Námafjall geothermal field the capacity over 30 years was estimated to be 260 MWe and for 50 years up to 150 MWe most likely without overexploiting the geothermal field.

Samþykkt: 
  • 30.5.2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/15313


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_Palmar_2013.pdf15,62 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna