Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/15322
Árið 2000 lýstu Michael Malin og Kenneth Edgett fyrstir manna svonefndum giljadrögum sem fundust á myndum Mars Global Surveyor geimfari NASA. Giljadrög eru litlar og mjög unglegar rof- og setmyndanir sem finna má í bröttum fjallshlíðum eða gígbörmum á Mars, líkast til mynduð af fljótandi vatni. Þessi giljadrög veita sannfærandi sönnunargögn um að vatn hafi runnið á ákveðnum tímum á síðustu milljónum ára, jafnvel þótt umhverfisaðstæður á reikistjörnunni virðist ekki leyfa það. Í þessari ritgerð er fjallað almennt um Mars, sögu rannsókna á reikistjörnunni, myndun hennar og uppruna vatns á henni. Sjónum er þó aðallega beint að giljadrögunum, fjallað um helstu kenningar um myndun þeirra, aldur, jarðfræðilegt samhengi og jarðneskar hliðstæður.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Giljadrog-Mars-SHB-BS-ritgerd.pdf | 1,31 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |