Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1534
Við fjöllum um fordóma og kynþáttafordóma og farið er ofan í kjölinn á hugsanlegum ástæðum fyrir þeim, tíðni og fjölbreyttum birtingarmyndum. Fjallað er um móðurskóla í fjölmenningarlegri kennslu ásamt verklagi þeirra gegn fordómum. Við skoðuðum námsefni og námsskrár sem í boði eru í leit af efni um fordóma og komumst að þeirri niðurstöðu að ekki er um auðugan garð að grisja og útbjuggum við því í kjölfarið kennsluhugmyndir sem vinna gegn fordómum fyrir kennslustund í lífsleikni.
Kynþáttafordómar eru þeir fordómar sem mest ber á í okkar samfélagi í dag og virðist það haldast í hendur við fjölgun nýbúa síðustu ár. Daglega birtast okkur fréttir í blöðum sem fela í sér neikvæða umfjöllun um nýbúa landsins. Kynþáttafordómar hafa alltaf verið til og er talið að þeir séu að aukast í samfélaginu og því er ekki seinna vænna en að reyna að koma í veg fyrir þá með fræðslu í grunnskólum landsins. Þess vegna ákváðum við að velja þetta efni þar sem okkur fannst verðugt að kynnast því betur. Í ritgerðinni okkar notumst við við heimildir úr bókum fræðimanna, af vefsíðum og úr viðtölum sem við tókum á vettvangi málefni okkar til stuðnings.
Lykilorð: Fordómar, kynþáttafordómar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Draupnir_lokaverkefni.pdf | 445.56 kB | Lokaður | Heildartexti |