Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/15356
Félagslegur æskileiki (social desirability) er hneigð fólks til þess að láta sjálft sig líta betur út í augum annarra í félagslegum samskiptum (Johnson, Fendrich og Hubbell, 2002). Félagslegur æskileiki skapar vanda þegar spurt er viðkvæmra spurninga í spurningakönnunum á þann hátt að hann hefur áhrif á réttmæti mælinga (Nederhof, 1985). Eitt helsta mælitækið á félagslegum æskileika er Marlowe-Crowne Social Desirability Scale (MCSD) sem hefur 33 atriði. Þetta verkefni er liður í þeirri vinnu að þróa réttmæta og áreiðanlega íslenska útgáfu af kvarða Marlowe og Crowne. Þátttakendur voru 17 alls, níu konur og átta karlar. Þeir voru á aldrinum 22 – 46 ára. Tekin voru viðtöl þar sem þátttakendur voru spurðir nákvæmlega út í túlkun á hverju atriði fyrir sig. Skilningur á atriðum Marlowe-Crowne kvarðans var nokkuð mismunandi á milli svarenda. Vandi tengdur þýðingu kom fram í 11 atriðum af 33. Mikilvægt er að skoða vel þær niðurstöður sem liggja fyrir með tilliti til þess að auka réttmæti kvarðans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_erlakarlsdottir_31.05.13.pdf | 471,52 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |