Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/15378
Með þessari lokaskýrslu er ætlunin að ljá þöglum röddum þeirra sem störfuðu eða tengdust Kárahnjúkavirkjun á einn eða annan hátt hljóm. Markmiðið er að opna fólki sýn á ýmsar hliðar þessa samfélags sem ekki hafa allar verið sýnilegar utan þess. Í því skyni voru tekin átján viðtöl við tuttugu og tvo íslenska einstaklinga.
Efninu er skipt niður í þrjá kafla. Sá fyrsti greinir frá upphafi rannsóknarinnar, aðferðum og markmiðum. Annar kafli fjallar um þau þemu sem greind voru út frá munnlegum heimildum auk annarra rannsóknargagna. Í þriðja og síðasta kaflanum er sagt frá sýningu á efni og niðurstöðum rannsóknarinnar en sýningin er hluti af þessu lokaverkefni. Í lokin er svo að finna samantekt á efninu og lokaorð.
Helsta niðurstaða rannsóknarinnar er sú að gríðarleg stéttaskipting var á svæðinu, mann- og félagslegir þættir voru ekki hafðir að leiðarljósi og að umfjöllun fjölmiðla gaf oft villandi sýn á það samfélag sem þarna bjó.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hilda Kristjánsdóttir.pdf | 559.74 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |