Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/15488
Í þessari ritgerð er spurt hvort hægt sé að fanga raunveruleikann á svið. Upplifun höfundar á raunveruleikanum er krufin, í framhaldi af raunveruleikasjokki á Indlandi og Orlandó Flórída. Orðið raunveruleiki, eins og það er notað innan fræðanna, er krufið og merkingarskriði þess gerð skil. Kenningum Baudrillard um eftirlíkingar er beitt við rýni á fjölskylduferð höfundar til Orlandó og líkur að því leiddar að sá heimur sem höfundur upplifði þar sé eftirlíking af raunveruleika. Kenningar Slavoj Zizek um Raun og Óra er beitt til krufningar á raunveruleikanum, og kenningar hans bornar saman við Leikhús Grimmdarinnar með það að markmiði að fanga raunveruleikann á svið. í lokin er dæmi tekið raunveruleika á sviði og hlutverki leikhússins velt upp.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba Ritgerð.pdf | 255,18 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
forsíða BA ritgerðar.pdf | 70,38 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |