Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16168
Ritgerðin kannar hvort lýðræðisríki múslima séu friðsæl, eða hvort þau lendi í stríði við önnur lönd. Heimspekingurinn Kant fjallaði um lýðræðisríki og frið fyrir um 200 árum og komst að því að þau lenda síður í stríði en önnur lönd. Forsetinn Wilson hélt þessum hugmyndum svo á lofti. Svo hafa þessar hugmyndir lifað áfram í gegnum stefnu frjálslyndis í heiminum. Frjálslyndið segir að viðskipti og alþjóðleg samvinna stuðli að friði í heiminum. Frjálslynt fólk vill stuðla að útbreiðslu stefnunnar af þeim sökum. Stofnanir og norm lýðræðisríkja stuðla að friði á meðal þeirra. Ritgerðin fjallar svo sögulega um þau átök sem alræðis- og lýðræðisríki múslima hafa lent í og skoðar hvort þau lendi í stríði. Niðurstaðan er sú að bæði lýðræðisríki og alræðisríki lendi í stríði. Mun ólíklegra er þó að lýðræðisríkin lendi í stríði en alræðisríki
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð_SigurgeirÞór.pdf | 713 kB | Lokaður | Heildartexti |