Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16176
Við rannsókn þessa, sem hrundið var af stað eftir hugmynd frá Samtökum lánþega, var farið í gagnaöflun sem fór að miklu leyti fram á vef Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS).
Unnið var úr þeim gögnum og skoðað hvort það væri fylgni á milli breytinga á skuldum ríkisins annars vegar og breytinga á vergri landsframleiðslu hins vegar. Einnig var skoðuð fylgni á milli atvinnuleysis og verðbólgu. Teknar voru fyrir þrjár þjóðir og bornar saman, það eru Ísland, Noregur og Þýskaland. Reynt var að fara nokkuð ítarlega í upplýsingar þær er fengust á vef AGS og unnið út frá þeim. Rétt þótti að nota aðeins þessa einu gagnaveitu til þess að vera með sams konar tölur fyrir þjóðirnar, í þeim tilgangi að koma í veg fyrir óþarfa skekkjur. Það er þó alltaf hætta á einhverjum skekkjum.
Notaður var hlutfallareikningur og einnig var reiknuð út fylgni með Pearsons-aðferð.
Helstu niðurstöður varðandi atvinnuleysi og verðbólgu eru þær að neikvæð fylgni er í öllum löndunum þremur. Ísland er með -0,5 Noregur með -0,6 og Þýskaland með -0,25.
Fylgnin á milli vergrar landsframleiðslu og skuldastöðu er hins vegar verulega veik þegar á heildina er litið og höfundur telur ekki raunhæft að tala um að þar sé fylgni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_Sigurbjörg_Kristmundsdóttir.pdf | 1.37 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |