Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16178
Markaðshneigð er ákveðin hegðun fyrirtækja gagnvart viðskiptavinum sínum. Með markaðsfærni vilja fyrirtæki geta rýnt betur í hegðun neytenda og eiga svör við þörfum neytenda og spá fyrir um framtíðarþarfir. Þekkingin og færnin á bak við hneigðina er mjög mikilvæg í samkeppninni sem er á hverjum markaði.
Til að varpa ljósi á hvort íslensk fyrirtæki séu markaðshneigð eru skoðaðar fræðilegar rannsóknir sérfróðra aðila, til að varpa ljósi á hvað markaðshneigðin getur skapað fyrir fyrirtækin almennt. Færninni eru gerð skil og farið í helstu rannsóknir sem snúa að hlutverki færninnar í hegðun fyrirtækjanna.
Megindleg rannsókn var gerð sem var send á markaðsstjóra eða forstöðumenn þeirra íslensku fyrirtækja sem tóku þátt í rannsókninni óflokkað eftir atvinnugrein til að varpa ljósi á hugsun og hegðun þeirra.
Helstu niðurstöður eru að íslensk fyrirtæki telja sig markaðshneigð, ásamt að vera með vakandi augu á þeirri starfsemi sem þau starfa við. Erfitt er að alhæfa um niðurstöðu þessa verkefnis en hún er finnur hljómgrunn í rannsóknarniðurstöðum Narver og Slater í rannsókn frá 1990.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaútgáfa_BS-Ritgerð_-_Ásgeir_Bachmann.pdf | 1,08 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |