en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Reykjavík University > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/16238

Title: 
  • Title is in Icelandic Styrktarþjálfun í knattspyrnu og körfuknattleik karla
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Bæði körfuknattleikur og knattspyrna gera ákveðnar líkamlegar kröfur til leikmanna. Rannsókn þessi var gerð í þeim tilgangi að skoða hvernig styrktarþjálfun í íþróttagreinunum tveimur væri háttað. Rannsóknarspurningarnar voru: hver er tilgangur styrktarþjálfunar, hver sér um styrktarþjálfunina, hvernig er styrktarþjálfun skipulögð yfir allt árið og er munur á milli styrktarþjálfunar í knattspyrnu og körfuknattleik? Til að svara rannsóknarspurningunum fengu allir þjálfarar í efstu deild í körfuknattleik og knattspyrnu á Íslandi spurningalista um styrktarþjálfun hjá sínum liðum. Alls svöruðu tíu knattspyrnuþjálfarar af tólf og allir körfuknattleiksþjálfararnir, eða tólf. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er tilgangur styrktarþjálfunar í knattspyrnu að fyrirbyggja meiðsli, auka vöðvaþol og auka hraða og tilgangur styrktarþjálfunar í körfuknattleik er að auka styrk, sprengikraft og koma í veg fyrir meiðsli. Algengast er að sérhæfður styrktarþjálfari sjái um styrktarþjálfun liðanna en liðin leita til einstaklinga með ólíka menntun til að sjá um styrktarþjálfunina. Skipulag styrktarþjálfunar breytist á milli tímabila. Fjöldi styrktaræfinga í viku minnkar töluvert þegar á keppnistímabilið er komið. Helsti munur styrktarþjálfunar í körfuknattleik og knattspyrnu er sá að eftirfylgni er meiri í knattspyrnu.

Accepted: 
  • Aug 22, 2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16238


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Lokaritgerd_olgeirogpallfannar.pdf1,78 MBOpenHeildartextiPDFView/Open