Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16250
Áhrifarík markmiðasetning hefur mikið að segja þegar kemur að því að ná settum markmiðum og bæta frammistöðu. Gerð var rannsókn á knattspyrnuþjálfurum á efsta stigi á Íslandi og lagður fyrir þá spurningalisti um markmiðasetningu. Leitast var eftir því að svara hvernig markmið þjálfararnir væru að setja, hvernig markmið setja þeir samanborið við þekkingu þeirra á grunnhugtökum í markmiðasetningu og hvort menntun tengd markmiðasetningu skilaði sér í betri meðhöndlun á markmiðasetningu. Niðurstöður leiddu í ljós að þjálfararnir settu langtímamarkmið frekar en skammtímamarkmið og marktækur munur var á því hversu vel þeir þekktu grunnhugtök í markmiðasetningu og hvernig þeir töldu sig kunna að vinna með hana.
Einnig kom í ljós að þjálfarar með menntun sem tengdist
íþróttasálfræði þekkja markmiðasetningu betur og kunna betur að nýta sér hana í starfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lára_Björg_Gunnarsdóttir_ Lokaverkefni_FINAL.pdf | 1,07 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |