Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16271
Inna er skólakerfi sem er notað í 30 framhaldsskólum á landinu. Í Innu er haldið utan um nemendur og nám þeirra ásamt einkunnum og viðveru. Jafnframt eru stundatöflur og próftöflur útbúnar í kerfinu. Í Innu er hins vegar ekki hægt að setja fyrir neina heimavinnu, verkefni eða próf. Þetta þýðir að þeir sem nota kerfið í starfi sínu þurfa í flestum tilfellum að notast við tvö kerfi. Nokkrir framhaldsskólar sem nota Innu hafa lýst yfir áhuga á að bæta inn í hana verkefna- og prófakerfi. Þar kemur þetta lokaverkefni við sögu.
Verkefnið snýst um að smíða frumgerð að nýrri einingu í skólakerfi Innu fyrir verkefna- og prófakerfi. Í kerfinu eiga kennarar að geta búið til verkefni og próf og sett fyrir nemendur sína sem í beinu framhaldi geta tekið þau. Verkefnið er sjálfstæð eining en er þó með tengingu við Innu í gegnum gagnagrunn þeirra. Í framtíðinni er vonast til þess að skólar sem noti Innu þurfi einungis að notast við eitt kerfi í starfi sínu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskyrsla.pdf | 862,51 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |