Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16327
Í þessari ritgerð verður fjallað um réttindabaráttu kynverundarinnar sem felst meðal annars í stuðningi alþjóðasamfélagsins til að virða og viðurkenna kynverundarréttindi sem hluta mannréttinda á grundvelli ákvæða Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Farið verður yfir uppbyggingu Mannréttindayfirlýsingarinnar og skilgreiningar hennar með sérstakri áherslu á fyrstu þrjár greinar hennar sem kveða á um jafna kröfu allra til réttinda, frelsis og virðingar. Hugmyndir um frelsi og rétt einstaklingsins hafa breyst og mótast í gegnum tímans rás en hugtökin verða rannsökuð með það markmið, að varpa ljósi á með hvaða móti kynverund tengist frelsi og mannréttindum og mikilvægi þess að sérhver manneskja fái að upplifa sig sem fullgildan samfélagsþegn.
Too often, human beings are denied basic rights, dignity, freedom and opportunity because of their, sex, sexuality or gender identity. This thesis examines how sexual rights are a component of human rights, related to sexuality, and the fact that it is pertinent that each and every human being experience oneself as an important contribution to society.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Asa_Laufey_ritgerd.pdf | 691.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |