en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/1636

Title: 
  • Title is in Icelandic Samkvæmni í mati á þremur munnlegum undirprófum WAIS-III
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Rannsóknir á samkvæmni í mati á milli matsmanna á Wechsler prófunum hafa verið misvísandi í gegnum árin. Í erlendum rannsóknum hefur hún oft verið lítil en í íslenskum rannsóknum hefur hún ýmist verið góð eða slæm. Athugað var hvort samkvæmni milli matsmanna væri til staðar í íslensku þýðingu WAIS-III greindarprófsins sem byggð var á breskri og bandarískri útgáfu prófsins. Skoðuð var samkvæmni á þremur munnlegum undirprófum prófsins, Orðskilningi, Skilningi og Líkingar. Einnig voru meðaltöl úr niðurstöðum borin saman við bandarísk viðmið. Prófið var lagt fyrir 25 einstaklinga á aldrinum 20 – 24 ára á Eyjafjarðarsvæði og á höfuðborgarsvæðinu. Í rannsókninni tóku þátt 13 konur og 12 karlar. Niðurstöður leiddu í ljós að áreiðanleikastuðull fyrir munnlegu undirprófin þrjú var talsvert lægri en í fyrri rannsóknum á sama efni. Einnig kom fram að meðaltöl rannsóknarinnar voru hærri en bandarísk viðmið. Mikilvægt er að betrumbæta skorunarviðmið í samræmi við niðurstöður þessarar rannsóknar. Með slíkum endurbótum væri hægt að vinna áfram að stöðlun þessa prófs fyrir íslenskar aðstæður.

Accepted: 
  • Jul 10, 2008
URI: 
  • URI is in Icelandic http://hdl.handle.net/1946/1636


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Samkvæmni í mati á þremur munnlegum undirprófum WAIS-III.pdf404,75 kBOpenSamkvæmni í mati á þremur munnlegum undirprófum WAIS-III-heildPDFView/Open