is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1647

Titill: 
  • Könnun á heilsu og færni eldri borgara sem búa í íbúðum fyrir aldraða við Lindarsíðu og Víðilund á Akureyri
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Aldraðir einstaklingar sem búa sjálfstætt í heimahúsum, eru oft á tíðum ekki í sterkri stöðu til að kalla eftir þjónustu sem þörf er á. Því hlýtur sú ábyrgð að hvíla á herðum heilbrigðisstarfsmanna að finna þá eldri borgara sem búa út í þjóðfélaginu við skert heilsufar og getu og þurfa þ.a.l. aukna þjónustu Til þess að auðvelda fagfólki að finna þessa borgara er mikilvægt að það hafi greiningartæki sem er auðvelt og fljótlegt í notkun en einnig áreiðanlegt og réttmætt.
    Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna hverjir eru í áhættuhópi varðandi þverrandi heilsu, færni og lífslíkur útfrá spurningarlistanum VES-13 (Vulnerable Elderly Survey). Þessi spurningarlisti var hannaður með það fyrir augum að auðvelda fagfólki að finna þá eldri borgara sem búa úti í þjóðfélaginu og eru í áhættu hvað varðar heilsuskerðingu, færni og lífslíkur. Einnig var það tilgangurinn með þessari rannsókn að kanna þá þjónustu sem einstaklingarnir eru að fá og þá í hve miklum mæli.
    Í þessari rannsókn eru þátttakendur 65 ára og eldri sem búa í íbúðum ætluðum öldruðum á Akureyri. Rannsóknin var megindleg og var úrtakið sextíu manns. VES-13 spurningarlistinn var lagður fyrir þátttakendur í gegnum síma. Notast var við hugbúnaðinn SPSS við tölfræðilega úrvinnslu ásamt töflureikninum Excel. Svörunin var 73% og voru þátttakendurnir flestir á aldrinum 75-84 ára.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að 59,1 % þátttakenda fengu 3 stig eða meira á VES-13 og voru þ.a.l. í 4,2 sinnum meiri áhættu að verða fyrir heilsu- og færniskerðingu eða að látast innan tveggja ára miðað við þá sem fengu færri en 3 stig á VES-13 en það var 40,9% þátttakenda . Alls voru 4 þátttakendur sem voru með fullt hús stiga eða 10 stig á VES-13 en það þýðir að þeir eru í 60% áhættu á að verða fyrir skerðingu á heilsu og færni eða látast innan 8-14 mánaða. Einnig kom í ljós að 41% eru að nýta sér formlega þjónustu en 29,5 % eru að nýta sér óformlega þjónustu.
    Þess vegna er mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um þá staðreynd hvernig ástandið er hjá þessum eldri borgurum, þannig að hægt sé að grípa inní með viðeigandi hætti og veita þá þjónustu sem stendur þeim til boða og eiga lögum samkvæmt rétt á.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til vors 2009
Samþykkt: 
  • 11.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1647


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
endalokaritgerð20082.pdf5.33 MBOpinn"Könnun á heilsu og færni eldri borgara"-heildPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf93.81 kBOpinn"Könnun á heilsu og færni eldri borgara"-heimildarskráPDFSkoða/Opna
Efnisyfirli1.pdf77.17 kBOpinn"Könnun á heilsu og færni eldri borgara"-efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf54.41 kBOpinn"Könnun á heilsu og færni eldri borgara"-útdráttur og abstractPDFSkoða/Opna