Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16470
Sögusvið þessarar ritgerðar er Rauðarárholtið í Reykjavík á árunum 1920-1940. Býlið Háteigur er í aðalhlutverki, það var byggt árið 1920 í Rauðarárholtinu. Þar af leiðandi verður sjónum beint að hjónunum Halldóri Kr. Þorsteinssyni og Ragnhildi Pétursdóttur sem byggðu húsið og reynt að fá innsýn inn í heimilislíf þeirra. Ákveðnir þættir í heimilislífinu eru hafðir að leiðarljósi og má þar helst nefna búskap og handavinnu. Býlið verður skoðað út frá umhverfi sínu, sem í upphafi var stórgrýtt holt en seint á fjórða áratug tuttugustu aldar fór ný byggð að þrengja að. Þá urðu miklar breytingar, einkum í kjölfar stríðsins og vegna tækniþróunnar og nýrrar atvinnutækifæra. Búskapur í Reykjavík fór því minnkandi þegar líða tók á tuttugustu öldina. Þessar breytingar verða skoðaðar út frá búskapnum sem stundaður var á Háteigi og athugað hvaða áhrif þær höfðu á starfsemina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba-Háteigur-tilbúin.pdf | 1.74 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |