en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/16546

Title: 
  • Title is in Icelandic Innkaupastjórnun og innkaupastjórnun í Vífilfelli. Er hægt að betrumbæta birgðahald Vífilfells?
  • Procurement management and procurement management in Vífilfell
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um innkaupastjórnun, skoða innkaupastjórnun í framleiðslufyrirtækinu Vífilfelli, sem staðsett er í Reykjavík, og athuga hvort hægt sé að betrumbæta birgðahald fyrirtækisins. Rannsóknarspurningin sem á að svara er: Er hægt að betrumbæta birgðahald Vífilfells?
    Innkaupastjórnun er hluti af vörustjórnun og í vörustjórnun er ferli vara stjórnað frá upphafi til enda en í innkaupastjórnun eru innkaupum og birgðahaldi fyrirtækis stjórnað. ABC greining er birgðagreining sem flokkar vörur eftir mikilvægi og liggja mismunandi forsendur að baki því hvernig fyrirtæki meta mikilvægi vara. Það er til dæmis hægt að flokka vörur eftir framlegð, kostnaði eða sölu og í mismarga flokka.
    Ritgerðin er heimildar og rannsóknarritgerð sem var unnin samkvæmt eigindlegri rannsóknaraðferð. Tekið var viðtal við Völu Rún Gísladóttur, sem var þá sérfræðingur í framleiðslu og innkaupum Vífilfells en er nú orðin yfirmaður vöruhúss og innkaupa, og upplýsingar voru skoðaðar úr bókhaldskerfi Vífilfells til að skoða birgðagreiningu og birgðahald fyrirtækisins. Helstu niðurstöður eru að hægt er að betrumbæta birgðahald Vífilfells. Þar má nefna að á síðasta ári hefur Vífilfell verið að framleiða vörur sem skila neikvæðri framlegð og bendir það til að fyrirtækið hefur verið að borga með þessum vörum. Fyrirtækið er því að nota fjármagn í að framleiða hluta af vörum sem skila fyrirtækinu ekki arðsemi. Einnig gerir Vífilfell ekki birgðagreiningu á innkaupum fyrirtækisins heldur notar birgðagreiningu aðeins sem hjálpartól til að ákvarða hvaða tegundir hafa forgang í framleiðslu og birgðagreining fyrirtækisins hefur aðeins verið notuð fyrir framleiðslulínur að Stuðlahálsi í Reykjavík.

Accepted: 
  • Sep 19, 2013
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/16546


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Jóhanna_Soffía_Sigurðardóttir_BS.pdf781,49 kBLocked Until...2133/12/31HeildartextiPDF