Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/166
Leikni í að nota hjólastól felur í sér að einstaklingur geti sjálfur ekið hjólastól og komist
yfir þær hindranir sem verða á vegi hanvið athafnir daglegs lífs og til þátttöku í
samfélaginu.
Heimildum ber saman um að hjólastóllinn sé eitt mikilvægasta hjálpartækið fyrir
mænuskaðaða einstaklinga og skipti miklu máli fyrir færni við iðju. Hjólastóll við hæfi
getur hjálpað þeim að ná sjálfstæði og verða virkir þátttakendur í samfélaginu og þar
með bætt lífsgæði þeirra. Iðjuþjálfar vinna í samvinnu við mænuskaðaða einstaklinga
við að efla færni þeirra við iðju þannig aþeir verði færir um að takast á við lífið á
nýjan leik.
Tilgangur rannsóknarinnar var að öðlast meiri þekkingu á leikni mænuskaðaðra
Íslendinga í notkun á hjólastól og fá fram viðhorf þeirra til kennslu og þjálfunar í
hjólastólaleikni. Til að afla upplýsinga var send spurningakönnun til allra
mænuskaðaðra einstaklinga á Íslandi. Af þeim 60 sem svöruðu spurningalistanum voru
35 sem notuðu handknúinn hjólastól og miðast niðurstöðurnar við svör þeirra. Notuð
var megindleg rannsóknaraðferð og var lýsandi tölfræði beitt við úrvinnslu gagna.
Niðurstöður sýndu að flestir þátttakendur réðu við grunnatriði í hjólastólaleikni. Mun
færri réðu við erfiðari atriði svo sem aaka stólnum á afturhjólunum. Rúmur helmingur
þátttakenda hafði fengið kennslu í notkun á hjólastól en tæplega helmingur hafði fengið
verklega æfingu í að nota stólinn. Margir þátttakendur töldu þörf á frekari kennslu og
þjálfun í að nota hjólastól. Niðurstöðurnar má nota til að styrkja fræðigrunn íslenskra
iðjuþjálfa og nota sem vegvísi í þróun á kennslu- og þjálfunaráætlun til frekari
uppbyggingar á þjálfun í hjólastólaleikni.
Lykilhugtök: Mænuskaði, hjólastóll, leikni, kennsla og þjálfun í notkun hjólastóls.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
leikni.pdf | 1,25 MB | Opinn | Leikni í að nota hjólastól - heild | Skoða/Opna |