Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/16606
Lokaverkefni þetta er vefsíða fyrir kennara og nemendur á unglingastigi grunnskóla. Viðfangsefni vefsíðunnar er varmafræði og á síðunni má finna 13 tilraunir sem er lýst með texta og ljósmyndum eða myndböndum. Á síðunni má einnig finna eina gagnvirka sýndartilraun. Undanfarið hefur staðið yfir undirbúningsvinna fyrir útgáfu nýrrar kennslubókar í náttúrufræði á unglingastigi. Einn kafli úr þeirri bók var hafður til hliðsjónar við gerð vefsins en áætlunin er að þessi vefsíða geti nýst í skólastarfi þegar kennt er úr þeirri bók. Á vefsíðunni, http://varmafraedi.wordpress.com er fjallað um sjö hugtök úr kafla bókarinnar og tilraunir sýndar sem eiga að þjóna þeim tilgangi að dýpka skilning nemenda á efninu. Þar sem tölvur skipa sífellt stærri sess í daglegu lífi fólks og í kennslu þá verða skólar að mæta þeim kröfum með aukinni fjölbreytni í kennslu og skipar veraldarvefurinn þar veigamikin sess. Í skóla án aðgreiningar er mikilvægt að jafnræði ríki á milli bóklegs og verklegs náms og að allir nemendur geti fengið kennslu við hæfi.