Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/16867
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er auglýsingabannið á áfengi og áhrif þess á áfengisneyslu. Tilgangur rannsóknarhluta ritgerðarinnar er að kanna hvort það sé ósamræmi á milli þess sem almennt er talið og þess sem rannsóknir sýna fram á um áhrif áfengisauglýsinga sem og hvort 20 gr. áfengislaga (auglýsingabannið) sé að gegna því hlutverki sem henni er ætlað.
Til er fjöldi erlendra rannsókna sem sýna fram á að engin tengsl eru á milli áfengisauglýsinga og áfengisneyslu og sýnt hefur verið fram á að þær rannsóknir sem sagt er að sýni fram á að áfengisauglýsingar auki áfengisneyslu séu gallaðar. Samkvæmt rannsóknum eru auglýsingar ekki eins megnugar og margir halda en á mettuðum markaði auka auglýsingar ekki heildarneyslu heldur stýra þær neytendum í átt að ákveðnu vörumerki. Rannsókn þessi fólst í því að sendur var út spurningalisti sem innhélt spurningar um áfengisauglýsingar ásamt nokkrum bakgrunnspurningum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu það í ljós að meiruhluti þátttakenda taldi að áfengisauglýsingar leiði til aukinnar heildarneyslu áfengis þrátt fyrir að fræðin og fyrri rannsóknir sýni fram á annað. Þar sem ekki hefur tekist að sýna fram á tengsl á milli áfengisauglýsinga og áfengisneyslu telja undirritaðir að áherslu stjórnvalda í áfengismálum sé beint í rangar áttir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc_John_Thorhallur_Auglysingabann.pdf | 1.07 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |