Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/16916
Niðurstöður rannsóknar sem hér verður greint frá eru byggðar á eigindlegri rannsóknaraðferð. Tekin voru viðtöl við tvo þroskaþjálfa og einn starfsmann sem unnið hafa lengi að málefnum fatlaðs fólks. Viðtölin voru í samtalsforni og stuðst var við opinn spurningarlista. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun dagþjónustuúrræðis fyrir fólk með fötlun. Leitast var við að tengja rannsóknina við mismunandi sjónarhorn fötlunarfræðinnar, lögum og reglugerðum. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kom fram að dagþjónustuúrræði fyrir fólk með fötlun hefur tekið ákveðnum breytingum í gegnum tíðina og má rekja þær breytingar til baráttu fatlaðs fólks sem hafnaði þeirri undirokun sem ríkt hafði í garðs fatlaðs fólks.
Einnig kom fram í niðurstöðum að dagþjónustan Fagrahlíð hefur þróast og áherslan breyst í þjónustunni. Verið er að gera gagngerar breytingar á þjónustunni með því að meta þjónustuþörf og koma þannig til móts við þjónustuþarfir notenda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Þróun Fögruhlíðar.pdf | 464.38 kB | Lokaður til...22.07.2122 | Heildartexti |