Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1696
Verkefni þetta er lokaverkefni höfundar til B.Sc. gráðu í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri. Í fyrri hluta verkefnisins er fjallað á fræðilegan máta um innleiðingu stefnumótunar út frá skipulagi fyrirtækja, mannauðsstjórnun, menningu og stjórneftirlitskerfum.
Í síðari hlutanum er fjallað um þær breytingar sem Olíufélagið Essó gekk í gegnum þegar félagið fékk nýtt nafn og nýja ásýnd. Breytingarnar eru sérstaklega skoðaðar með tilliti til fræðanna um innleiðingu stefnumótunar sem fjallað er um í fyrri hluta ritgerðarinnar.
Rannsóknarspurningin sem leitað er svara við er:
Hvernig hefur tekist til með skipulagsbreytingar og samruna við stofnun N1 samsteypunnar?
Fyrirtækið stóð frammi fyrir mikilli áskorun vegna ímyndarvanda og uppkaupa á fjölda smærri fyrirtækja. Ákveðið var að ganga til sameiningar allra félaganna undir nýju nafni og slá þannig tvær flugur í einu höggi. Annars vegar að segja skilið við Esso vörumerkið og skilja ímyndarvandann eftir, og hins vegar að efla markaðssókn félagsins undir einu nafni í stað fjölmargra áður. Allt leiddi þetta af sér töluverða hagræðingu. Í heildina litið má því segja að vel hafi tekist til með skipulagsbreytingar og samruna við stofnun N1 samsteypunnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Innleiding_nyrrar_synar_efnisyfirlit.pdf | 74.32 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Innleiding_nyrrar_synar_utdrattur.pdf | 28.7 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna | |
Innleiding_nyrrar_synar_heimildaskra.pdf | 100.05 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Innleiding_nyrrar_synar_allt.pdf | 2.18 MB | Opinn | Lokaritgerðin öll | Skoða/Opna |