Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/17186
Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.A. prófs í spænsku við Háskóla Íslands. Í því er sjónum beint að einni af vinsælustu íþróttum heims, knattspyrnu. Megin markmið lokaverkefnisins er að varpa ljósi á ríginn sem myndast hefur á milli spænsku stórliðanna Real Madrid og Barcelona.
Í upphafi ritgerðarinnar er stutt frásögn af uppruna knattspyrnu, meðal annars með upplýsingum um gamlar boltaíþróttir sem hún er talin eiga rætur sínar að rekja til. Þar á eftir er fjallað um sögu íþróttarinnar eins og við þekkjum hana í dag og í kjölfarið er sjónum beint að knattspyrnunni á Spáni þar sem reynt er að gera grein fyrir vinsældum íþróttarinnar þar í landi. Á Spáni er að finna tvö af stærstu knattspyrnuliðum heims, Real Madrid og Barcelona. Segja má að þau, ásamt öðrum liðum í landinu, spili stórt hlutverk í lífi margra heimamanna.
Í síðari hluta ritgerðarinnar er fjallað um hið flókna samband á milli þessara stórliða og greint er frá uppruna og sögu þess mikla rígs sem þróast hefur á milli þeirra. Þá er fjallað um pólitískar hliðar knattspyrnunar á Spáni þar sem einræðisherrann Francisco Franco kemur við sögu. Einnig eru dæmi tekin um þjóðfélagslegar hliðar íþróttarinnar og það hvernig sum knattspyrnulið hafa orðið að táknmynd fyrir ákveðna þjóðfélagshópa.
Í lok ritgerðarinnar er fjallað um málefni sem hefur sett svartan blett á þessa vinsælu íþrótt, þ.e. ofbeldi og öfgahópa, en þar eiga aðdáendur og áhorfendur íþróttarinnar stærstan hlut að máli.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BA RITGERÐ.pdf | 353.5 kB | Open | Heildartexti | View/Open |