en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Iceland University of the Arts > Hönnunar- og arkitektúrdeild / Department of Design and Architecture > Ritgerðir til BA-gráðu / BA theses (BA) >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/17207

Title: 
  • Title is in Icelandic Táknmyndin Mikki Mús
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Mikki Mús er eitt þekktasta vörumerki sem til er. Það samanstendur af útliti, grafískri hönnun, á Mikka Mús eins og við þekkjum hann í dag sem hefur boðskap fram að færa og hefur ákveðna persónusköpun sem skapar honum nánast sjálfstæða tilveru. Mikki er vörumerki Walt Disney samsteypunnar. Þá hefur kynning á vörumerkinu frá upphafi verið gerð með nýjustu tækni einkum á sviði kvikmyndagerðar. Leiða má líkur á því að vinsældir hans byggja á öllum þessum þáttum. Persónan er góð, og í ævintýrum sínum lætur hún oftast gott af sér leiða. Allir þessir þættir sem Mikki Mús samastendur af hafa leitt til gríðarlegra vinsælda og útbreiðslu um heim allan. Það er efni ritgerðar þessarar að skoða og greina alla þessa þætti sem mynda sem ein og samsett heild vörumerkið Mikki Mús. Ég tel mikilvægt að skoða sögu Mikka Mús til þess að geta leitt lesandanum fyrir sjónir hvers vegna Mikki Mús er eins og hann er í dag. Mikki mús markaði einnig ákveðin tímamót í teiknimyndagerð, því eins og komið verður inn á síðar í ritgerðinni, ruddi hann brautina fyrir aðrar teiknimyndapersónur bæði í kvikmyndum og í teiknimyndasögum.

Accepted: 
  • Jan 22, 2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/17207


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
meginmál lhi maggi.pdf783,07 kBLocked Until...2039/01/01MeginmálPDF
Táknmyndin Mikki Mús fyrstufjorar.pdf15,51 kBLocked Until...2039/01/01EfnisyfirlitPDF