Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1723
Þetta verkefni er unnið í tengslum við varahlutalager ITS. Reksturinn hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og hefur haft mikil áhrif á starfsemi lagersins. Biðraðir eða flöskuhálsar við vinnustöðvar eru þar þekkt vandamál. Megin tilgangur þessa verkefnis er að skoða vinnu- og vöruferla á lagernum, finna biðraðir og setja mælikvarða. Markmiðið er að finna álagspunkta svo auðveldara verði að stýra vöruflæði og mannafla. Hermilíkan verður sett upp í tölvu og skoðað verður hvort hægt sé að líkja eftir raunverulegu vöruflæði lagersins.
Eftir vinnslu þessa verkefnis liggur fyrir þó nokkuð af upplýsingum um vöruflæði lagersins. Eftir skoðun á vinnustöðvum og samtölum við starfsfólk fékkst góð lýsing á vöruflæði og vinnuferlum. Önnur gögn sem notuð voru í þessu verkefni fengust úr tölvukerfi ITS, stoð-tölvukerfi innkaupadeildar og við tímamælingar á afgreiðslutíma á völdum vinnustöðvum. Þessi gögn eru ekki fullkomlega áræðanleg en gefa góðar vísbendingar um flöskuhálsana. Mælikvarðar á biðröðum og vinnustöðvum voru fundnir, ásættanlegur biðtími var ákveðinn og frávik síðan mæld. Athugavert er að ásættanlegur biðtími náðist ekki í neinu mælanlegu tilfelli.
Samkvæmt niðurstöðum verkefnisins á að leggja áherslu á innkomu varahlutana inn á lager. Móttaka (Receiving), samþykki (Acceptance) og staðsetning á SE lager. Eftir að hafa keyrt hermilíkanið með ásættanlegum biðtíma þá voru ennþá biðraðir á þessum vinnustöðvum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð.pdf | 711.11 kB | Lokaður | |||
Efnisyfirlit.pdf | 177.96 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Heimildaskrá.pdf | 179.35 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Útdráttur.pdf | 83.81 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna |