Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17305
Því hefur verið haldið fram að efnishyggja (materialism) aukist í kjölfar kreppu en dragist saman á tímum góðæris. Á krepputímum skapast gjarnan óöryggi og hafa fyrri rannsóknir haldið því fram að óöryggi sé ein orsök efnishyggju. Fyrri rannsóknir hafa ekki sýnt fram á með sannfærandi hætti að aukið fjárhagslegt óöryggi leiði til aukinnar efnishyggju. Gögnum var aflað í kjölfar efnahagshruns, sem að var sérstæður tími í íslensku samfélagi. Efnishyggja, fjárhagsleg ógn (financial threat) og fjármálakunnátta (money management skills) voru mæld haustið 2010 (N=736), haustið 2011 (N=356) og vor 2012 (N=335). Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort aukning á fjárhagslegu óöryggi á milli þessara tímapunkta leiði til aukinnar efnishyggju. Niðurstöður leiddu í ljós að aukið fjárhagslegt óöryggi leiði til aukinnar efnishyggju, óháð fjármálakunnáttu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS VERKEFNI.pdf | 695.13 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |