Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/17368
Markmið verkefnisins var að finna leið til að nýta betur hráefni, nánar tiltekið eldhúð og forskiljuryk hjá Elkem Íslandi sem er járnblendiverksmiðja á Grundartanga. Með
eldhúðinni eru blandaðar mismunandi gerðir járnblendis. Gerð var tilraun til að köggla efnið með því að hræra sementi saman við hráefnið.
Hræran var svo sett í form til þurrkunar og brotþolsprófuð.
Gerðar voru tilraunir með mismunandi blöndur og kögglarnir prófaðir með tilliti til styrks til að athuga hvort þeir þoli ferlið að ofnunum.
Útkoman er nokkrar blöndur sem vert er að reyna í framleiðsluofnana hjá Elkem.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 6,19 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |