is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1748

Titill: 
  • Farin(n) að kenna og hvað svo... ? Hvernig nýútskrifaður kennari nær árangri í starfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi lokaritgerð er unnin til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri, vorið 2008. Í ritgerðinni er starf grunnskólakennarans skoðað með augum nýútskrifaðs kennara.
    Fjallað er um kennslu og starf kennarans og því margþætta hlutverki sem hann gegnir í daglegu skólastarfi. Reynt er að gera sér í hugarlund sum þeirra viðfangsefna sem nýútskrifaður kennari þarf að glíma við fyrst í stað. Þar sem kannanir sýna að bekkjarstjórnun er algengt áhyggjuefni kennara er þeim þætti gert sérlega hátt undir höfði. Önnur mikilvæg viðfangsefni eru einstaklingsmiðaðir kennsluhættir og hvernig virkja má nemendur.
    Í ritgerðinni er leitast við að svara rannsóknarspurningunni hvernig nær nýútskrifaður kennari árangri í starfi. Stuðst er við skrif ýmissa fræðimanna ásamt reynslu ritgerðarhöfundar af kennaranáminu. Sýnt er fram á hvernig óreyndur kennari getur tileinkað sér viss vinnubrögð í daglegu starfi sem munu þjálfa hann sem kennara og styrkja sjálfstraust hans.
    Niðurstöður rannsóknarspurningarinnar birtast í formi „Gátlista kennara sem nær árangri í starfi“. Á listanum má meðal annars finna ráðleggingar um framkomu og stjórnarhætti kennara og hvernig auka má virkni og ábyrgð nemenda á eigin námi. Einnig er áhersla lögð á skipulag kennarans og samstarf heimila og skóla. Markmið ritgerðar er að gátlistinn geti nýst og orðið hægðarauki fyrir nýútskrifaða kennara sem vilja ná árangri í starfi.

Samþykkt: 
  • 22.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1748


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Alicelok.pdf436.9 kBOpinnFarin(n) að kenna og hvað svo... ?-heildPDFSkoða/Opna