is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1751

Titill: 
  • Safnafræðsla : að fortíð skal hyggja ef frumlegt skal byggja
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Söfn og sýningar hafa verið í sókn á Íslandi og um allan heim. Hlutverk safna hafa einnig verið að breytast og þróast. Þau hafa verið að koma meira á móts við þarfir safngesta að auðvelda þeim að skoða og skilja það sem þau hafa upp á að bjóða. Markvissri safnafræðslu er þó víða ábótavant og þurfa söfn að marka sér stefnu í fræðslumálum og útbúa kennsluefni sem söfn geta boðið skólahópum uppá. Góður undirbúningur fyrir safnheimsóknir er mikilvægur eigi heimsóknin að skila tilætluðum árangri.Þegar safnheimsókn er undirbúin er mikilvægt að vera í góðu sambandi við safnakennara eða safnvörð, upplýsa hann um hvaða námsefni sé verið að fjalla í skólanum, þannig að hann geti undirbúið sig út frá því.
    Kennara er frjálst að skipuleggja hvað hann tekur fyrir innan þess ramma sem námskráin segir til um. Vettvangsferðir á safn eykur möguleikann á fjölbreytni í kennsluháttum en fjölbreyttar kennsluaðferðir geta komið á móts við misjafna stöðu nemenda. Heimsókn á safn stuðlar því að nemendur kynnist sögu og menningu á áþreifanlegri hátt en í kennslubókum og eigi auðveldara með að skilja og átta sig á aðstæðum þeirra og sögu sem söfnin eru að geyma. Þessi ritgerð er um safnafræðslu og er verið að hugsa út frá söfnunum á Siglufirði sem eru Síldarminjasafnið og Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar og einnig út frá grunnskólanum þar.
    Bæði þessi söfn geta miðlað fróðleik og skemmtun sem nýta má til kennslu í flestum námsgreinum. Bæði söfnin hafa samt sína sérstöðu og bjóða upp á ólíkar sýningar. Í lok þessarar ritgerðar koma hugmyndir að verkefnum sem hægt er að vinna með í samráði við grunnskólann á staðnum og ætluð nemendum á yngsta og miðstigi. Þau eiga að sýna í hvernig formi verkefnin geta verið og hvað leiðir er hægt að fara til að nálgast efnið á sem fjölbreytilegastan máta og höfði til sem flestra nemenda.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 1. jan. 2009
Samþykkt: 
  • 23.7.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1751


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
heild1.pdf359,31 kBOpinnSafnafræðsla heildPDFSkoða/Opna
meginmál.pdf336,47 kBOpinnSafnafræðsla MeginmálPDFSkoða/Opna
efnisyfirlit.pdf47,92 kBOpinnSafnafræðsla efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
heimildarskrá.pdf96,52 kBOpinnSafnafræðsla HeimildarskráPDFSkoða/Opna