Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/17511
Í þessari ritgerð er leitast við að svara því hvort mögulegt sé að vefengja móðerni barna samkvæmt íslenskum rétti líkt og hægt er að vefengja faðerni. Er helstu reglum um faðerni og móðerni barna lýst og varpað upp þeim álitaefnum sem kunna að rísa um móðerni barna, meðal annars með tilliti til þeirra tækniframfara sem orðið hafa á síðari árum. Sérstök áhersla er lögð á rétt barna til að þekkja uppruna sinn eins og hann birtist í 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sbr. lög nr. 19/2013 og hvort núgildandi löggjöf um vefengingarmál samrýmist stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og öðrum mannréttindareglum sem tryggja eiga réttindi og velferð barna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HafdísUna öll ritgerðin.pdf | 274.1 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |