Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1766
Þessi ritgerð er unnin til B.Ed. prófs í grunnskólafræðum við Háskólann á Akureyri, vorið 2008. Markmið hennar er að kanna námsefnið Kynlíf – kynfræðsla fyrir ungt fólk, eftir Ásdísi Olsen. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er eftirfarandi; Stuðlar námsefnið Kynlíf - Kynfræðsla fyrir ungt fólk að auknu kynheilbrigði hjá nemendum? Námsefnið er útfært með hugmyndafræði lífsleikninnar þar sem lögð er áhersla á sjálfsþekkingu og sjálfsábyrgð nemenda.
Lögð var könnun fyrir kennara frá ólíkum landshlutum sem hafa notast við námsefnið á unglingastigi. Meginviðfangsefni könnunarinnar var að kanna hvort námsefnið stuðli að auknu kynheilbrigði hjá unglingum. Niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós að námsefnið stuðlar að auknu kynheilbrigði meðal nemenda á efsta stigi grunnskóla. Fræðslan sem námsefnið veitir ýtir undir að nemendur tjái sig á uppbyggilegan og einlægan hátt um kynlíf og kynferðismál ásamt því að auka skilning þeirra á líkama sínum og tilfinningum. Jafnframt stuðlar námsefnið að ábyrgari kynhegðun nemenda og dregur úr ranghugmyndum þeirra gagnvart kynferðismálum.
Rannsakendur telja að mikilvægt sé að byggja kynfræðslu unglinga á fyrirbyggjandi leiðum í stað þess að grípa til hræðsluáróðurs. Fræðslan er því hugsuð sem jákvætt forvarnarstarf þar sem lögð er áhersla á að byggja upp sjálfstæða nemendur. Neikvæð fræðsla í kennslu getur haft þveröfug áhrif og ýtt undir rangar ákvarðanir þegar kemur að kynferðismálum . Besta forvörnin í kynfræðslu er því sterk sjálfsmynd og góð líkamsvitund.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kynlif_Lokaritgerd.pdf | 2.29 MB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |