Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/17736
Að skrifa kvikmyndahandrit er frábrugðið því að skrifa fagurbókmenntir. Kvikmyndahandritið lýtur öðrum reglum og þó að handrit sé lipurlega skrifað og það framkalli myndir í hugum lesenda, er því ekki ætlað að standa eitt og sér, líkt og til að mynda skáldsögur gera.
Í raun má segja að handrit séu leiðarvísar fyrir leikstjóra, leikara og aðra sem koma að gerð kvikmynda. Þar af leiðandi er orðaskrúð og óþarfa flúr aðeins til trafala. Í vel skrifuðu handriti er textinn einfaldur og skýr. Hann greinir frá því sem koma skal fyrir sjónir á skýran og skilmerkilegan hátt. Því kvikmynd er fyrst og fremst sjónrænn miðill.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokokoljpfft.pdf | 350,71 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |