is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/18012

Titill: 
  • „Bara svona venjulegt heimili.“ Hugmyndafræðin að baki fjölskylduheimilum Reykjavíkurborgar
  • Titill er á ensku "Just an ordinary home." The ideology behind Family Homes in Reykjavík City
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA-gráðu við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
    Megintilgangur ritgerðarinnar er að skoða hvers vegna fjölskylduheimili Reykjavíkurbogar voru sett á laggirnar á sjöunda áratug 20. aldar og hver hugmyndafræðin var að baki þessu tiltekna barnaverndarúrræði. Einnig er ætlunin að varpa ljósi á tilgang fjölskylduheimilanna og form. Ritgerðin er fræðileg samantekt að meginuppistöðu og efni hennar er tengt við kenningar og fræði félagsráðgjafarinnar. Til að átta sig á þeirri gerjun sem átti sér stað í félagslegri þjónustu Reykjavíkurborgar og þróun í barnaverndarmálum á tilteknu tímabili voru skoðaðar ársskýrslur, bókanir og fleiri gögn á Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Tekin voru viðtöl við fólk sem þekkti vel til fjölskylduheimila, hvert á sínu sviði, til þess að fá skýrari mynd af úrræðinu.
    Helstu niðurstöður leiddu í ljós að á þeim tíma sem fjölskylduheimilin voru sett á laggirnar stóðu barnaverndaryfirvöld í Reykjavík frammi fyrir nýjum áskorunum við að vista börn sem gátu ekki búið hjá foreldrum sínum. Ný þekking á þörfum barna og hugmyndafræðin um heimilisleg barnaverndarúrræði barst til landsins á þessum árum.
    Ný viðhorf til barnaverndarmála má meðal annars rekja til félagsráðgjafa sem voru að koma heim úr námi um 1960. Breytt viðhorf til uppeldisaðferða kallaði á ný vinnubrögð í
    félagslegri þjónustu Reykjavíkurborgar. Upp úr þessum hugmyndum er fyrsta fjölskylduheimilið af fjórum stofnað í Skála við Kaplaskjólsveg árið 1965.
    Fjölskylduheimilin áttu að vera fyrir börn sem ekki hentaði að vera vistuð á einkaheimilum. Hugmyndin var að heimilin ættu að vera rekin eins og „venjuleg“ heimili þar sem byggju hjón með börn. Starfsemi fjölskylduheimila lauk í upprunalegri mynd
    árið 1991.
    Efnisorð: Fjölskylduheimili, Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Barnavernd Reykjavíkur, Félagsráðgjöf

Samþykkt: 
  • 9.5.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18012


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð Skemman.pdf715 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna