en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/18108

Title: 
  • Title is in Icelandic Lögreglan og samfélagsmiðlar: Ímynd og orðspor
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Almenningur á Íslandi hefur lengi borið mikið traust til lögreglunnar en minna er vitað um þá ímynd sem lögreglan hefur í huga almennings. Ritgerð þessi fjallar um samskipti lögreglu og almennings í gegnum samfélagsmiðla á internetinu og hvernig hægt er að skapa viðskiptatengsl milli opinberrar stofnunar og almennings. Auk þess er fjallað um hvernig nota megi þessi tengsl til að skapa stofnun ákveðna ímynd í huga almennings. Litið er á samskipti löggæsluyfirvalda fyrr og nú, ímyndasköpun því tengdu og löggæslu hér á landi. Auk þess eru helstu samfélagsmiðlar nútímans skoðaðir og athugað hvernig Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nýtir sér þá við löggæslustörf. Þá verður litið á notkun annarra stofnana og félagasamtaka á samfélagsmiðlum og hvernig nota má samfélagsmiðla við stjórnun viðskiptatengsla. Könnun var gerð með það að leiðarljósi að sjá hver áhrif samfélagsmiðla Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru á ímynd lögreglunnar sjálfrar og störf hennar. Einnig var athugað hvort fólk geti hugsað sér að fylgjast með fleiri opinberum stofnunum á samfélagsmiðlum. Niðurstöður könnunar voru þær að notkun lögreglunnar á samfélagsmiðlum hefur góð áhrif ímynd lögreglunnar. Fólk sér lögregluna í nýju ljósi og kynnist mannlegu hlið lögreglunnar. Áhugi fyrir öðrum opinberum stofnunum á samfélagsmiðlum var hins vegar ekki jafnafgerandi mikill og áhuginn fyrir núverandi samfélagsmiðlum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Accepted: 
  • May 12, 2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18108


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
BS-verkefni - Viðskiptafræði - Markús Benediktsson - FINAL.pdf793,76 kBOpenHeildartextiPDFView/Open