Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/1813
Í þessari ritgerð er fjallað um málþroska barna og leiðir til þess að örva málþroska. Sérstök áhersla er lögð á umfjöllun um áhrif lesturs fyrir börn á málþroska og hvað starfsfólk leikskóla getur gert til þess að efla málþroska barna.
Einnig er fjallað um bókaverkefni sem unnið var á einni deild leikskólans Grænuvalla á Húsavík. Fjórtán fimm ára börn tóku þátt í verkefninu. Markmið verkefnisins var að gera bækur aðgengilegri á deildinni og skoða hvort það hefði áhrif á áhuga barnanna á því að skoða bækur. Bókasafnið á Húsavík var fengið til samvinnu og fengnar að láni þar um fjörutíu barnabækur auk bóka úr bókasafni leikskólans. Í fjórar vikur fóru börnin heim með tvær bækur sem þau völdu í leikskólanum.
Í upphafi verkefnisins fengu foreldrar spurningalista þar sem skoðað var hvort lesið væri fyrir börnin heima.
Lykilorð: Börn, bækur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni skil.pdf | 646,26 kB | Lokaður | Heildartexti |