en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/18173

Title: 
  • Title is in Icelandic Reittur til reiðis. Um -s endingu í eignarfalli orða eins og reiði
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þessi ritgerð er lögð fram til BA-prófs í íslensku við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Henni er ætlað að gera grein fyrir málbreytingu sem felst í því að kvenkynsorð sem enda á –i í íslensku fá –s í eignarfalli eintölu. Þetta eru orð eins og heppni, keppni og reiði. Málbreytingin hefur verið til samhliða hefðbundnu eignarfalli svo lengi sem elstu heimildir herma og er í ýmsum ritum sögð tilkomin fyrir áhrif frá hvorugkynsorðum af svipaðri gerð. Leitað er svara við því hvers vegna þessi orð geti fengið –s í eignarfalli og hvað sé að eiga sér stað í málkunnáttu þegar málhafi beitir t.d. orðmyndinni reiðis í stað reiði í eignarfalli.
    Ritgerðin skiptist í fjóra hluta. Í fyrsta kafla eru kenningar Chomskys um meðfædda málkunnáttu kynntar til sögunnar og fjallað er um málbreytingar, einkum þær sem eru taldar kvikna í máltöku barna. Í öðrum kafla er hefðbundin lýsing á beygingarkerfi íslenskra nafnorða dregin fram auk þess sem fjallað verður um lýsingu á beygingarkerfinu frá sjónarhóli málkunnáttufræði. Rætt verður um orðasafnið og aðra þætti málkunnáttunnar með tilliti til málbreytingarinnar. Í þriðja kafla eru fyrri skrif um málbreytinguna dregin fram og gerð grein fyrir nýrri rannsókn og niðurstöðum hennar. Í fjórða og síðasta hluta ritgerðarinnar eru helstu niðurstöður eru dregnar saman og ræddar.

Accepted: 
  • May 12, 2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18173


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Forsíða&titilsíða.pdf127.62 kBOpenForsíðaPDFView/Open
Reittur til reiðis.pdf632.36 kBOpenMeginmálPDFView/Open