en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

University of Iceland > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/18205

Title: 
  • Title is in Icelandic Fjörsváfnir. Morðmál í Eyjafirði 1704
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Viðfangsefni ritgerðar er rannsókn á morðmáli í byrjun 18.aldar þar sem fjallað er um málsaðila, lagaumhverfi og ættarsamfélag á Íslandi. Í þessu máli neitar hinn ákærði ætíð sök en fellur á tylftareið og er dæmdur á framburði vitna og líkum um ætluð banaráð. Sögusviðið er Eyjafjörður og er áherslan á persónusögu, að sumu leyti er þetta einnig ættarsaga og héraðssaga.
    Efnisskipan byggist á umfjöllun um eyfirskt bændasamfélag á þessum tíma, sögusvið og staðhætti. Fjallað er um aðdraganda máls og aðila þess, aðkomu yfirvalda, vitnisburði og þing-og málsmeðferð og eru dóma-og þingbækur nýttar til heimilda, ábúendatal og annálar auk annarra. Litið er yfir fjölskyldusögu sakbornings og ætt og baráttu við að halda klausturumboði innan ættar. Umboðin gáfu umsjónarmönnum sínum aukinn hagnað og völd og þau juku samkeppni milli höfðingja innbyrðis um hylli konungs og höfuðsmanns hans. Aðild ættingja sakbornings og hans sjálfs í þessari valdabaráttu er skoðuð og hvernig þau mál settu svip á viðhorf almennings og annarra til hans og fjölskyldu hans.

Accepted: 
  • May 13, 2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/18205


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
fjorsvaBA.pdf510.44 kBOpenHeildartextiPDFView/Open